Hvers vegna að fara með árshátíðina til útlanda þegar þú getur verið í Reykjavík?
Á Hilton Reykjavík Nordica ríkir alþjóðleg stemming og öll þjónusta og aðbúnaður er á heimsmælikvarða. Við bjóðum upp á framúrskarandi súlulausan sal fyrir 100 – 450 manna árshátíðir, frábært hótel til að hýsa mannskapinn og langbesta matinn í bænum. Ef þematengja á teitið má gera ýmsilegt með ljósum, ábreiðum á stóla og borð, blómum eða jafnvel Elviseftirhermum, hverju sem þér dettur í hug. Við erum líka með sambönd við allar vinsælustu hljómsveitirnar og veislustjórana og í góðu samstarfi við umboðsskrifstofuna Prime.is.
Leitaðu ekki langt yfir skammt, við tökum veisluna alla leið, og það innan bæjarmarkanna.