Brúðkaup

Það eina sem þú þarft að gera ef þú ert í brúðkaupshugleiðingum er að finna rétta makann og hafa síðan samband við okkur á VOX, við sjáum um rest.

Við bjóðum þér og þínum uppá allar gerðir af veislum, allt frá kaffihlaðborði í margra rétta kvöldverð. Hjá okkur er einvala lið þjónustu- og matreiðslufólks sem er hokið af reynslu og þekkingu þegar kemur að undirbúningi þessa stóra dags í lífi þínu. Við erum líka með á okkar snærum faglærða blómameistara sem útbýr ógleymanlegan brúðarvönd og blóm í hnappagat um leið og borðskreytingarnar. Í lok dags bjóðum við öllum brúðhjónum sem halda veisluna hjá okkur á VOX að þiggja gistingu á Hilton Reykjavík Nordica, og að sjálfsögðu fá fallegan morgunverðarbakka í rúmið daginn eftir.


Brúðarpakkar Hilton

Við megum einnig til með að segja þér frá sérstökum brúðarpökkum sem Hilton býður upp á. Brúðarpakkarnir bera heitin Silfur, Gull og Demants og eru allir hlaðnir mismunandi lúxus sem miðast við að skapa hinn fullkomna endir á þennan mikilvæga dag.
Þú getur kynnt þér pakkana nánar á tilboðssíðu Hilton Reykjavik Nordica á vef Icelandairhotela, sjá hér.
Pakkarnir innihalda að sjálfsögðu veitingar frá VOX.