Ráðstefnur og fundir

Tíminn er peningar. Þetta vitum við og virðum við okkar viðskiptavini. Hjá okkur getur fundurinn þinn orðið markviss og snuðrulaus í alla staði því aðstaða til fundarhalds er hvergi betri en á Hilton Reykjavík Nordica hóteli. Framúrskarandi fundarsalir, óaðfinnanleg þjónusta og tæknileg umgjörð, ásamt veitingum frá VOX, og þú þarft einungis að tryggja að fundarefnið sé klárt.

Fyrir þá sem ekki hafa áhuga á að pússla fundarpakkanum saman sjálfir, erum við búin að því, með öllu inniföldu. Aðrir geta sett saman sinn fund eða ráðstefnu með okkar aðstoð, eftir því sem hentar hverju sinni.