VOX á vettvang

VOX restaurant hefur á undanförnum árum öðlast verðskuldað orðspor sem einn allra besti veitingastaður norðan Alpafjalla. Fyrir þá sem hinsvegar kjósa að bjóða til veislu í heimahúsi eða innan veggja sinna fyrirtækja, bjóðum við VOX á vettvang. Þú hóar í þá sem þú vilt gera vel við, og okkar flottustu fagmenn koma til þín og sjá um að dekrað sé við gesti þína í mat og drykk eins þeir væru okkar eigin. Við komum með allt með okkur sem til þarf. Þjóna, kokka, dúk og disk, jafnvel músíkina líka. Allt sem þú þarft til að gera veisluna óaðfinnanlega, hvort sem er hádegis, eftirmiðdags eða kvöldverðarboð.